|
hvað skoðar íslandsdóttirin?
|
27.11.2006 15:52:58 / islandsdottir
jæja, tók þetta af síðunni hennar sollu... www.gormurinn.bloggar.is
ég svaraði um hana og þá er komið að henni að svara um mig

1.Hver er þú ?
2. Erum við vinir ?
3. Hvenar hittumst við fyrst ?
4. Ertu hrifin af mér ?
5. Langar þig að kyssa mig ?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu af hverju
þú valdir það:
7. Lýstu mér með einu orði:
8. Hvernig leist þér á mig fyrst þegar þú sást
mig ?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig ?
10. Hvað minnir þig á mig ?
11. Ef þú gæti gefið mér eitthvað, hvað myndi
það vera ?
12. Hversu vel þekkiru mig ?
13. Hvenar sástu mig síðast ?
14. Hefur þig einhverntíman langað til að segja
mér einhvað en ekki getað það ?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég
geti skrifað um þig ?
nóg í dag 
»
26.11.2006 18:06:35 / islandsdottir
mín er búin að vera ein heima alla helgina, sá litli búinn að
vera hjá pabba sínum og kemur heim á morgunn og stóri fór norður
var að spila leik á akureyri áðann með drengjaflokknum og þeir unnu
eru alveg að gera sig drengirnir og ég er rosalega ánægð með þá
til hamingju strákar 
ég er búin að setja seríur í alla glugga nema hjá þeim stóra,
ætla að leyfa honum að sjá um það sjálfur svo er mar búin að
setja jólagardínur í eldhúsið og finna jóladúk á eldhúsborðið
maður er ekki alveg í lagi held ég en mér er sama, er ekkert að
spá í því hvað öðrum finnst 
gsa dæmið mitt gengur bara vel, fynnst ferlega erfitt stundum að
hringja í sponsorinn minn á hverju kvöldi, er stundum að vinna á
kvöldin, stráksi fer stundum seint að sofa og svona... er búin að
minnka alveg heilann helling og gef orðið flest fötin mín brósi
gaf mér fjórar gallabuxur um daginn og allir rosa hissa á því að ég
gæti notað þær, helst vorum ég og hann mest hissa ekkert smá
gaman!!!! þannig að það gengur rosa vel bara hlakka til að fara
norður um jólin og hitta fullt af fólki sem maður hefur ekki hitt
lengi og þegar það sér mann montprik ég!!!
fór í foreldraviðtal á fimmtudag og kom í ljós að sonurinn á að
fara í greiningu útaf athyglisbresti og ofvirkni svo á að tékka
á heyrninni og málinu líka... kom manni reyndar ekkert þannig á
óvart en maður samt hélt í vonina um að þetta væri nú í lagi... því
án vonarinnar er allt búið spil eiginlega... sem dæmi um það
hvernig sonurinn getur verið er t.d. að han þarf alla aðstoð við að
borða, hann kann ekki á hnífapör og ef það er ekki setið yfir honum
þá er hann kominn undir borð eða oná það og veit ekkert hvað hann
er að gera... svo getur tekið klukkutíma að fara úr fötum og í
önnur því hann gleymir sér alltaf og ef hann fer einn á klósettið
þá gleymir hann sér og pisar þess vegna í vaskinn!!! ekki beint
spennandi að lifa svona... svo getur hann ekki horft á sjónvarp
einu sinni nema að vera á hlaupum og örugglega erfitt að vera svona
eyrðarlaus 
ég er líklegast að skreppa norður bara framm og til baka í lok
vikunnar á jarðarför... Örn Steinar frá Þorgrímsstöðum dó í byrjunn
síðustu viku og vil ég hér með votta aðstandendum samúð mína og
Erni virðingu mína, það er mikill missir af honum 
jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, ætla að malla matinn
minn og svo er jómbi vinur minn að fara að kíkja í smá heimsókn

kv.
»
19.11.2006 17:41:21 / islandsdottir
viðerum að tala um bullandi
bloggleti í gangi hjá manni verð að nenna að bæta úr þessu
en annars gengur lífið fínt hjá manni er á fullu í gsa
og það gengur vel, ætti að vera á degi 47 en þar sem ég
trassaði að tilkynna matinn minn er ég komin á dag eitt aftur
en ég lifi það nú vel af er með fínann spons
þannig að það er fínt að hringja í hana á hverjum degi og
spjalla annars er ég búin að léttast um 6.4 kg á
einum og hálfum mánuði sem er stór plús svo eyðir mar
minni pening, maður er ekki alltaf að kaupa sér eitthvað
slikkerí og svoleis drasl... eyði miklu meira í grænmeti bara
ís taðinn kaupi alltaf íslenskt og helst lífrænt
ræktað þannig að það er pínu dýrara en ef mar kaupir erlent.
bara miklu betra bragt sko!!
skólinn gengur fínt,
prófundirbúningur að byrja, helst að manni vanti smá einbeitingu
ekki alveg að gera sig sko en maður verður bara að reyna að
vera hörð við sjálfa sig 
er annars að byrja að missa mig
yfir jólunum, farin að spila jólalög á billjón, kertaljós og
jólaseríur svo er mar búin að redda slatta af jólagjöfum en smá
eftir á eftir að finna út hvað mar á að gefa syninum og ég er
alveg lost og svo veit ég ekkert hvað ég vil fá í jólagjöf mamma
vill gefa mér vöfflujárn en ég vil ekki svoleis því ég ét ekki
lengur vöfflur helst bara gjafakarfa með bodylotion og svoleis
dæmi ekki vil ég föt því ég ætla að minnka meira þannig að
það tekur því varla svo eru jú bækur alveg sívinsælar því ég er
alger bókaormur já og mig langar líka í hanska svona leður og
flottheit hlakka ekkert smá til að fara norður í jólafrí... fer
líklegast um 22 des og verð í sirka viku hef ekki farið
norður síðann í september og er komin með netta
heimþrá!!!
komin í jólafrí í skólanum 6 des,
ekkert smá næs að vera búin svona snemma!!! þá tekur bara við vinna
verð að vinna á gamlárskveld og nýársdagsmorgunn, fólk heldur að
ég sé biluð en væ nott? drekk ekki og verð bara ein í bænum og hef
enga fjölskyldu, litli bró verður fyrir norðann og sonurinn hjá
pabba sínum og fósturmömmu og hefur það gott bara þannig að ég
ætla bara að vinna og fá smá meiri pening engin smá græðgi í
manni 
jæja komið nóg í bili, verð að
vera duglegri að blogga í framtíðinni og vonandi fer einhver að
lesa hjá manni hahahha...
kyss og knús til ykkar allra og
farið vel með ykkur og verið góð við hvort annað... ykkar
íslandsdóttirin
»
15.10.2006 17:54:52 / islandsdottir
jæja dagur 13 er alveg að fara að líða og ég er ennþá á
lífi alveg hreint magnað hvað maður getur verið án þess að fá
sér kex, brauð, brasaðann mat og sælgæti og allt það sem maður lá í
hérna í fyrri daga en núna er maður algerlega án!!! mér líður
semsagt rosalega vel nema auðvitað kemur fíkillinn upp í manni
stundum og manni langar alveg óheyrilega í eitthvað gotterí og þá
titrar maður og skelfur en þá tel ég bara uppí tíu, fer með
æðruleysisbænina og skelli í mig köldu vatni virkar ótrúlega vel
svo fer maður að vinna í sporunum einn góðann veðurdag og minni
hér með pjallann minn á að hann ætlaði að lána mér 12 spora bókina

ég var annars að vinna alla helgina, kvöldvakt á föstudag,
morgun OG kvöldvakt í gær og svo morgunvakt í morgunn... þannig að
helgin bara hvarf inná hjúkrunarheimilinu mínu annars var vinnan
ágæt, samt að vinna með rosalega erfiðann sjúkdóm og í raun og veru
þá heillar þessi sjúkdómur mig á vissann hátt, hann er svo
leyndardómsfullur, ekkert hægt að gera og ekki neitt er farin að
kynna mér heilann helling um þetta og langar að læra meira. þetta
er í fjölskyldunni minni því miður og maður hefur horft uppá fólk
veslast upp án þess að geta nokkuð að gert já, hérna er ég
að tala um alzheimersjúkdóminn mér þykir svo vænt um fólkið
sem ég er að vinna með, bæði sjúklinga og samstarfsfólk... allir
svo góðir eitthvað 
annars er vetrarfríið í skólanum að klárast, verklegt kl 8 í
fyrramálið, ekki alveg að gera sig að hafa það svona snemma að
morgni hehehe... maður er hvorki alminnilega vaknaður og
svo er helgin að baka og mar bara einfaldlega ekki í stuði
skólinn gengur annars fínt, fékk bara A í miðannamati og fæ á
morgunn að vita hvað ég fékk útúr erfiða sýklafræðiprófinu mínu sem
var svo auðveldara en maður átti von á 
annars hef ég mest lítið að segja, ætla loks að t.d. gera nýja
skoðanakönnun þyrfti svo að gera eitthvað í tenglunum sem ég er
með og svona sjáum til hvað ég nenni miklu 
kyss og knús...
»
10.10.2006 18:04:28 / islandsdottir
Jæja ég er latasti bloggari í
heimi!!! Annars er ég komin á kaf í gráu síðurnar og ég er ekki
frá því að það sée að bjarga lífi mínu! Líður svo vel andlega,
líkamlega líður mér betur en í langann tíma og bara allt svo
mikið betra. Ég er á degi átta í fráhaldi og gengur bara
rosalega vel, hef enga þannig þörf fyrir sykur og kolvetni. Er
farin að drekka skuggalega mikið af vatni og pepsi max ekkert
smá gott!!! Ég hlakka alltaf til að fara á fundi, eru á
mánudögum og fimmtudögum, er reyndar oft að vinna á þessum tíma
en hlakka alltaf til að fara á GSA fundina mína, þeir hjálpa mér
mikið, fá reynslusögur, ráð, vita að maður er ekki einn í þessu
vandamáli.
Skólinn gengur bara fínt sko, búin
með eitt hjúkrunarfræðipróf og fékk 8.1 á því og nokkuð sáatt við
það er svo að fara í próf í dag í sýklafræði og er komin með
vægt magasár yfir því, enda fáum við enga kennslu og ekki neitt
ekki alveg beint að gera sig.
Vetrarfrí frammundan. Á hádegi á
morgunn er mín komin í vetrarfrí, reyndar vinna föstudag, laugardag
og sunnudag en það er bara alvanalegt hlakka til að geta legið í
leti, sofið frammað hádegi og gert eitthvað fyrir mig verður
rosalega indælt, við svava vinkona gerum kannski eitthvað sniðugt
með krökkunum okkar 
Annars er ég eitthvað frekar andlaus
núna og hef lítið að segja, enda lítið um að vera, bara í skólanum,
heima, vinunni og fundum 
Kyss og knús íslandsdóttir
»
03.10.2006 15:49:14 / islandsdottir
sælt veri fólkið  ég er latur bloggari og veit vel af því 
annars er rosalega gaman í skólanum orðið, búin að kynnast
æðislegri stelpu/konu  við höngum saman í skólanum og eftir skóla
líka svoldið með krakkana  hún á dóttur sem er á svipuðum aldri
og marius og þau eru bestu vinir  amk væri ég örugglega búin að
gefast uppá þessum skóla ef ekki væri fyrir Svövu mína  var í
prófi í morgunn og gekk bara mjög vel að ég held  bara krossa
fingur fyrir því... annars er nóg að gera hjá manni, maður er að
vinna hægri vinstri, í skólanum, og er að fara að byrja á
námskeiðum líka um helgar  fríhelgarnar mínar fara í það... svo
eru náttla ofurkrúttin mín, marius og toggi sem taka slatta af
athygli  annars er ég að byrja í prógrammi, gsa... getið lesið
ykkur til á www.gsa.is ég hata fordóma þannig að ef eitthvað þarf
að röfla þá bara sleppið því því það brýtur mig alltaf eitthvað
niður  er að reyna að byggja mig upp og vonandi er lausnin í
þessu en hver veit, hafði amk engu að tapa með að prófa þetta og er
ég núna í dag á fyrsta degi í fráhaldi frá kolvetnum og gengur
sæmilega  skrýtið samt svolítið  ég er ekki fíkin í grænmeti en
púff það er til full mikið af því góða  við svava ætlum með
krakkana um helgina og gera eitthvað skemmtilegt, fara í sund í
keflavík, fara í fjölskyldu og húsdýragarðinn eða eitthvað
svoleiðis skemmtilegt  hlakka bara til!!! annars var ég aðallega
að láta vita að ég væri á lífi  er að fara að byrja á siðfræði
ritgerð um líknardráp og það er ekki beint að heilla mig og ég er
ekkert að komast í gang með það helvíti  kyss og knús
islandsdottirin
»
05.09.2006 20:44:15 / islandsdottir
jæja, það er víst að koma vetur  kominn tími til að blogga ekki
satt??? en jæja annars er bara rosa fínt að frétta af mér og mínum

ég er byrjuð í skólanum og líkar það sæmilega bara, þekki náttla
enga eiginlega og fynnst hálf skrýtið að læra nánast allt sem ég
kann  heheh... svo er ég byrjuð að vinna á Hjúkrunarheimilinu
Sóltúni og það er fínt  er að vinna aðra hverja helgi og 2-3
kvöld í viku  frekar mikið en maður reynir að láta það ganga því
maður verður að fá pening  thíhíh, ekki lifir maður á loftinu

íbúðin sem ég, sonur minn og brósi erum í er í eigu foreldra minna
eins og er en ég tek við henni þegar ég er búin í skólanum  hún
er æðisleg!!! er reyndar með gutts í mínu herbergi en það er allt í
lagi því það er stórt og hann er með svona hátt rúm með leikplássi
undir 
verst að þetta er á 4 hæð!!! á besta stað í Hlíðunum 
svo er frænka mín frá svíþjóð hjá mér núna og það er bara æðislegt
 maður er reyndar farinn að tala svo mikla ensku og farin að tala
við guttann  thíhí...
annars er lítið að frétta nema bara skólinn, vinnan, uppeldi og
túristaleikir eru á fullu hjá manni 
bið að heilsa bara í billi
knús til ykkar allra
»
13.07.2006 16:47:05 / islandsdottir
:bloggið mitt er farið í sumarfrí  nenni ekki að blogga þessa
dagana eins og allir hafi séð  sjáumst bara fersk í haust þegar
skólinn byrjar með tilheyrandi látum
»
15.06.2006 08:44:26 / islandsdottir
»
13.06.2006 01:17:44 / islandsdottir
»
25.05.2006 07:39:51 / islandsdottir
góðann daginn ég er með tvennar montfréttir núna og þið
verðið bara að lifa við það EN...
búin að fá einkannirnar í skólanum átti von á falli í þýsku
og jafnvel í líffæra og lífeðlisfræði en neinei, mín fékk 5 í því
báðu... svo kom 7 útúr enskunni, 8 útúr sálfræðinni og 9 útúr
íslenskunni ég er rosa glöð og montin með þetta bara er
búin að skrá mig í fjarnám í sumarskóla svo í sumar í ármúla
æi er svo glöð með að þetta gekk svona ágætlega bara en
svoooooo er hitt montið mitt 
byrjaði í smá heilsuátaki fyrir 3 og hálfri viku sirka... engin
súper megrun eða neitt heldur bara hreyfa mig meira og borða hollar
og það er farið að segja til sín illa gekk að léttast til að
byrja með en ég var nú ekkert að einblína á það en núna er fyrsta
kílóið farið svoooo mæli ég ýmsa hluta líkamans og þar hafa
farið 2 cm af upphandlegg, 2 af brjóstunum, 3.5 af mittinu, 2 af
vömbinni þar sem feitust er, 3 af rassinum, 2 af læri, 1.5 af kálfa
já, ég er nokkuð sátt bara er ekkert í keppni um að missa sem
mest en það er náttla bara plús má alveg við að missa svona 15
kg amk þannig að þetta er smá dropi í hafið 
annars er lítið að frétta, kosningar frammundan og ég vil bara
minna á www.xs.muna.is
grillveisla hjá samfylkingunni hérna í kvöld og bara gaman við
gutts ætlum að mæta og erum að reyna að fá amk Katrínu okkar með
okkur söknum hennar rosalega!!!! væri náttla flott að fá muruna
kallinn hennar með líka en hann er eflaust að vinna á
dósinni... svo er kosningakaffi á laugardag og þá fær mar sér
væna tertusneið gengur ekkert annað...
svo er Toggi bró útí svíþjóð að keppa á norðurlanda móti
unglinga í körfubolta og ég vil óska öllum krökkunum þar góðs
gengis!!! ég krossa fingur á hverjum degi og hugsa til ykkar og
langar að vera með ykkur þarna úti en pabbi var heppnari og fór með
þeim... getið fylgst með á www.kki.is og svo líka http://smartstat.svenskidrott.se/netcasting/
þannig að bara allir að kíkja á litla bró og svo er Dalla
bekkjarsystir hans líka að keppa ég er svooooo montin af þeim

annars bara leti í dag, mamma þarf að fá frið til að sofa, er að
vaka núna í tvær nætur, marius verður örugglega að leika við
Jónínuna sína í allann dag eins og venjulega og sést varla
heima...
kyss og knús...
ykkar....
»
23.05.2006 02:20:51 / islandsdottir
»
05.05.2006 22:01:31 / islandsdottir
prófin eru byrjuð!!! með tilheyrandi magasárum og leiðindum
búin í fyrsta prófinu sem var enska og það gekk rosa vel... hef
meiri áhyggjur af þýskunni og Lollinu ekki beint mínar sterkustu
hliðar en ég geri mitt besta og betur get ég ekki gert 
ég er byrjuð í heilsuátakinu mínu farin að borða mun hollari
mat og farin að hreyfa mig alveg heví rosa dugleg!!!
geðheilsan er eins og best verður á kosið og verður vonandi
þannig áfram... lyfin mín og allt er bara að gera sig 
mig langar samt í kærasta 
er að byrja að vinna í næstu viku samhliða prófunum og hlakkar
og kvíður fyrir... gaman að fara að vinna, kvíður fyrir ef það er
rosa mikið að gera því ég er óvön svona í byrjun...
annars er helgin bara að læra, slappa af, njóta þess að vera með
syninum, hreyfa stóra rassinn sinn og bara eitthvað letilegt 
svo allir senda mér þýskustrauma!!!!
klemz...
»
23.04.2006 22:40:04 / islandsdottir
jæja ekkert hefur gengið að finna áhugamál... en það kemur
vonandi með tíð og tíma... en núna er nýtt mál á dagskrá!! og það
er mér hjartans mál og ég eiginlega veit ekki af hverju ég ætla að
skrifa um það hérna en mér er alveg sama, ég verð að hafa þetta
einhverstaðar fyrir augunum á mér til að minna mig á hlutina en
ég þarf að léttast!!! léttist mikið á sínum tíma og leið mun
betur... núna hef ég bætt á mig nokkrum ljótum kílóum í staðinn
fyrir að missa fleiri eins og átti að gerast en hvað um
það... ég reyni og reyni en ekkert gerist... gengur kannski í
nokkra daga en svo fell ég... ég veit að ég þarf að vera hörð við
sjálfa mig en eins og staðan er í dag þá er leiðinn svo mikill
hérna mér leiðist mest í heiminum og hef ekkert við tímann að
gera... og þá ét ég svo er ég búin að vera undanfarnar vikur
að slást við vænt þunglyndi og tilheyrandi og ég ét mér til
huggunar EN fyrir helgi var ég að byrja á nýjum lyfjum og
mjög algengar aukaverkanir eru minnkuð matarlyst og það ætti
vonandi að hjálpa mér... svo þegar ég byrja í vinnunni þá hef ég
mikið að gera og mun þá ekki éta á mig gat... fæ aðgang að salnum
hjá Mikka og ráðgjöf hjá honum... sem verður vonandi gott mál því
ég held að ég þurfi aðhald við þetta... ekki nóg að ég sé bara ein
útí horni að berjast við ljóta fitupúkann!! það bara er ekkert að
gera sig því maður (amk ég) lýgur hiklaust að sjálfum sér með sitt
átak... en þegar maður hefur einhvern sem skammar mann fyrir það
sem mar gerir vitlaust það gæti hjálpað amk vona ég það.
en við það að léttast þá líður manni betur... bæði á líkama og
sál... þunglyndið mitt og allur sá pakki er útaf ofþyngd að mestu
og þá vonandi fer mér að líða betur maður getur keypt sér föt
nánast hvar sem er og þarf ekki að eltast við búðir sem selur stór
númer og þarf að vera eins og asni við að máta og í kvíðakasti yfir
að þetta passi nú kannski ekki og ÚPS, ekki til stærra númer í
búðinni!!! maður fær jákvæðari athygli þegar maður er ekki í
ofholdum, fólk lítur jákvæðar á mann og maður er ekki strax
útlistaður letihaugur og átvagl. ég vil vera syni mínum góð
fyrirmynd... mamma sem nennir að gera hlutina, nennir að hreyfa
sig, nennir að líta vel út, getur borðað rétt og svo framvegis því
maður sjálfur er besta forvörnin fyrir börnin myndi ég nú
telja.
ég er að hugsa um að byrja rólega þangað til ég fer að vinna...
og get þá tekið alminnilega á þessu og hef tíma, ekki endalausar
bækur og uppeldi... ég ætla BARA að drekka vatn og te... ekkert
djús með matnum... ég ætla bara að fá mér einu sinni á diskinn minn
þótt það sé rosa góður matur í boði... ég ætla ekki að fá mér neitt
eftir kvöldmat að borða nema þá helst einhverja ávexti ef ég verð
svöng. ég ætla ég ætla ég ætla... ég segist ætla allann heiminn og
ég skal geta það... ég má ekki brjóta sjálfa mig niður með að ég sé
aumingji og lúser ef ég tek eitt hliðarspor... þá legg ég það bara
til hliðar og held áfram...
ég ætla ekkert endilega að einblína á kílóin núna næstu 3
vikurnar, heldur aðallega að koma mér á beinu brautina og finna mun
á sjálfri mér hvernig mér líður betur þegar eitthvað gengur upp hjá
manni 
æi ég varð að röfla einhverstaðar um þetta og ég ætla mér að
vera sterk og geta þetta... ég hef getað þetta áður!!! og þá skal
ég geta þetta aftur svo öll tips eru vel þegin þótt maður viti
nú flest eftir að hafa staðið í fitupúkabaráttu oft oft oft... en
núna skal þetta hafast...
jæja komið nóg af röfli í bili komin með rafmagn á bílinn,
stráksi hættur að æla, mér líður betur á sálinni og hlakkar til a
mæta í skólann, get ekki beðið eftir að skólinn verði búinn og
komast að vinna og allt það 
kyss og knús...
»
21.04.2006 18:31:49 / islandsdottir
mig vantar áhugamál!!! ég hef gaman af alveg fullt af hlutum...
en ekkert sem ég get gert svona mér til dundurs eila og haft gaman
af mér fynnst rosalega gaman að ferðast en maður getur ekki
verið að því endrum og sinnum, bæði tímafrekt og peningafrekt ég
hef rosalega gaman af dýrum og af því að fara í sveitina... en ég
get ekki verið að standa í því alltaf að keyra lon og don til að
komast í sveitina, þurfa að hafa guttann alltaf með mér og svona og
þá kemur maður engu í verk ég ELSKA að lesa bækur og geri
ótæpilega af því en ég verð svo þreytt af því og sofna alltaf
þannig að þetta er nú kannski ekki æskilegasta áhugamálið ... já
svo er það pólitíkin, ég hef rosalega gaman af að fylgjast með
henni og fylgist vel með vefjum flokkanna kannski að maður ætti
að hafa það sem áhugamálið? já, frammyfir kosningar... hvað á mar
þá að gera?????þannig að þá mun min vanta áhugamál ég er
gersamlega hæfileikasnauð í höndunum... hef reynt að prjóna og
svoleiðis... já nei takk, allt frekar en það ég get jú saumað út
og geri það vel EN ég fæ illt í augun af því og stífar axlir...
föndur og þannig?? mikið vildi ég geta það en nei óli prik verður
abstrakt hjá mér er ég hæfileikalaus???? ég get ekki
sungið í sturtu einu sinni!!! ég get ekki eldað og er ömurlegur
kokkur það er að verða úr litlu að velja... einhverjar
hugmyndir handa mér??? mig vantar svoooooo einhverja lífsfyllingu,
eitthvað áhugamál, eitthvað sem ég hef gaman af og ég bara finn
ekki sjálf hvað það er er til einhver stofnun sem hjálpar
fólki að finna sér áhugamál sem er hægt að stunda og kostar helst
enga peninga???
jú, þegar ég dratta mínum feita rassi af stað þá hef ég rosalega
gaman af allskonar íþróttum, að stunda þau sjálf... hæfileikarnir
eru kannski ekki uppá marga fiska en það skiptir nú ekki miklu máli
því ég er yfirleitt EIN að öllu það er kostur útaf fyrir sig að
vera alltaf ein að dútla við sitt sport alltaf sama hvers kyns það
er, það er enginn að bögga mann á því hvað mar er lélegur... en það
er svoooooo leiðinlegt að vera ein til lengdar í sportinu og þá
gefst mar upp þannig að mar verður eila að hafa einhvern
lélegann með sér en ekki hef ég fundið mér félaga í þetta frekar
en nokkuð annað... verð örugglega ein til eilífðar verð einstæð
mútta í fjallakoti einhverstaðar uppá afdölum með beljur og geitur
æi nei helst ekki, vil nú ekki að sonur minn alist upp hjá bitri
kellingu 
en jæja hvað um það hvar finnur maður sér maka? mig langar í
mann... mannsefni, en ekki bréfsefni hahahha... fyndin ekki
satt en þessi er stolinn frá Ragnusi sorry Ragnus en já,
var finnur maður sér mann? ég er reyndar ekki farin að örvænta illa
en núna er þessi löngun í manni að eiga sér kærasta einhvern til
að deila lífinu með en ég virðirst ekkert vera að rekast á hann
ég skoða netið en niiiii eitthvað lítið þar, ég skoða djammið og
eitthvað lítið þar... ég fer í bónus og þeir eru ekki seldir þar...
og í skólanum eru bara börn... ætla ekki að vera með tvö börn sko
þannig að smá tips óskast hvar mar eigi að leita 
en jæja, nóg af bullinu í dag 
kyss og knús til ykkar allra með ósk um að þið hjálpið mér að
finna áhugamál og kall... samt ætti ég nú að gera þetta sjálf en
tips sakar ekki 
»
Síður: 1 2 3 4
|
|